Lýsing
- Einingapakki I
Útveggir
Grind: alhefluð fura 48 x 148 mm. fest saman með BMF vinklum
samkv. íslenskum stöðlum. Öll undirstykki þrýstifúavarin.
Asfaltdúkur undir undirstykkjum.
Heilklætt utan á grind með 9 mm vatnsheldum birkikrossvið,
einangrun í veggi: 150 mm steinull.
Loftunargrind að utan 22 x 50 mm. 34 mm bjálkafurupanell
2 x áborinn og negldur á með galvaniseruðum
saum. Innan á vegg kemur plast rakasperra.
Þak
Sperrur 48 x 198 mm fura/greni ásamt límtrésbita í mæni.
Sperrufestingar fylgja til festingar við límtrésbita
og veggi, 175 mm steinullareinangrun ásamt listum og masoniteplötum
fyrir loftun, klæðning á þak er 25 x 150 mm
fura, þá þakpappi ásamt lituðu bárustáli.
Þakkantur úr
sama og útveggur, klæðning undir þakkant úr
sléttum 19 x 140 mm furu/greni panel. Kjölur, skotrennur,
rennur og rennubönd fylgja ásamt niðurfallsrörum
og festingum.
Gólf (ef fylgir í tilboði)
48 x 198 mm gólfbitar, botn 9 mm vatnsheldur krossviður,
175 mm steinullareinangrun, plast rakaspera og gólfklæðning
22 mm OSB plata eða 22 mm berandi plankaparket.
Gluggar,
hurðir
Gluggar eru ábornir furugluggar af skandinaviskri gerð,
með tvöföldu gleri samkvæmt evrópustöðlum. Útihurðir
eru ábornar furuhurðir smíðaðar skv. skandinaviskum
venjum. Áfellur innan og utan fylgja. Gluggakistur inni fylgja
ekki.
Þurrkun
Allt efni sem kemur utan rakasperru í veggjum og gólfi
er þurrkað í a.m.k. 15 - 18 %.
Frágangur
Ú
tveggir koma í einingum tilbúnum að utan, einangraðir
með gluggum og hurðum ísettum og með útipanel ábornum
og ásettum, músanet undir opum á loftunargrind.
Glugga og hurðafrágangur er endanlegur. Sperrur og límtrésbitar í loft
eru sniðið í lengdir. Plast innan á veggjum.
Aðrir húshlutar koma ótilsniðnir í lengdum.
Ekkert
annað en það sem að framan er talið fylgir.
Ath.
Engar lagnir fylgja. Saumur í þak, þakkant, hornalok, gerefti
og panil fylgir ekki.
Boltar
til að festa húsið niður á sökkul
fylgja ekki. Allar aðrar festingar fylgja.